News
Agreement on Geothermal Resource Development Cooperation between A Er Shan of Inner Mongolia PRC, Enex China and Sinopec Star Petroleum
The President of Iceland, Mr. Ólafur Ragnar Grímsson was present at the signing ceremony of the geothermal development cooperation agreement at the Residence of the Icelandic Ambassador to China Mrs. Kristin Arnadottir in Beijing.
> See Icelandic version
The agreement signed on September 12th mandates the Icelandic-Chinese partners, Enex China and Sinopec Star Petroleum to assist the authorities in Inner Mongolia to initiate and compile a geothermal survey in the A Er Shan region. Furthermore, to plan and identify the spread, reservoir, development, preservation and utilization opportunities of geothermal resources in the region. The parties have agreed to cooperate on geothermal development and utilization in the A Er Shan region, with an emphasis on building up indoor heating systems, greenhouse agriculture and geothermal electricity generation. The A Er Shan municipality will furthermore nominate technicians to participate in the United Nations Geothermal Training Programme in Iceland.
Inner Mongolia, with a population of over 24 million, is located in northeast part of China. In the north, the region has borders to the Republic of Mongolia and Russia in the northeast. With its continental climate of cold dry winters, geothermal heating systems may prove to be a good fit to reduce dependence on fossil fueled heating systems in the region.
Pictured on the right; Mr. Alexander Gudmundsson, Chairman of Enex China signed the agreement, with the representatives from the A Er Shan Municipality. Present at the signing ceremony were Mr. Ólafur Ragnar Grímsson, President of Iceland and Iceland‘s Ambassador to China, Mrs. Kristín Árnadóttir. Dr. Zhan Qi, President of Sinopec Star and Benedikt Hoskuldsson, Head of Energy Affairs, from the Ministry for Foreign Affairs of Iceland.
About Enex China
Enex China is an Icelandic geothermal company established to develop geothermal heating systems in China. Enex China began working as a geothermal consultant for Chinese municipalities in 2002 and established an office in China in 2005, when cooperation began on the Xianyang project. The geothermal heating operation was later transferred into Shaanxi Green Energy, Enex China's JV with Chinese oil giant Sinopec Star. Enex China is held by Geysir Green Energy (80.5%) and fellow Icelandic geothermal company Reykjavik Energy Invest (19.5%).
Stjórnvöld í Innri Mongólíu í Kína undirrita samstarfssamning á sviði jarðhita við Enex Kína og Sinopec Star
Samkomulag um samstarf á sviði rannsókna og nýtingar jarðhita milli stjórnvalda í Innri Mongólíu í Kína og Enex Kína og samstarfsaðila þeirra, Sinopec Star Petroleum var undirritað í sendiráðsbústað Íslands í Peking að viðstöddum forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni og Kristínu A. Árnadóttur sendiherra í Kína.
Samkomulagið sem var undirritað 12. september síðastliðinn kveður á um að Enex Kína og Sinopec Star Petroleum aðstoði yfirvöld í A Er Shan héraði í Innri Mongólíu í Kína að hefja rannsóknir og gera úttekt á jarðhitamöguleikum í A Er Shan. Jafnframt felur samkomulagið í sér samstarf til þess að kortleggja og tilgreina jarðhitasvæði og jarðhitageyma ásamt því að skoða verndunar- og nýtingarmöguleika á jarðhitasvæðum í héraðinu. Aðilar að samningnum hafa samþykkt að vinna sameiginlega að þróun verkefna til jarðhitanýtingar í A Er Shan með höfuðáherslu á uppbyggingu hitaveitu, gróðurhúsaræktun og framleiðslu á raforku með jarðhita. A Er Shan sveitastjórnin mun jafnframt tilnefna tæknimenntað starfsfólk til þátttöku í Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna sem starfræktur er á Íslandi.
Innri Mongólía er sjálfstjórnarsvæði í norðausturhluta Kína þar sem búa yfir 24 milljónir manna. Svæðið er með landamæri að Mongólíu og Rússlandi. Þar er meginlandsloftslag ríkjandi með köldum vetrum þar sem nýting jarðhita til húshitunar getur hugsanlega leyst af hólmi kola- og gaskyndingu húsa.
Á mynd til hægri:
Alexander K. Guðmundsson, stjórnarformaður Enex Kína skrifaði undir samkomulagið við forsvarsmenn frá A Er Shan héraði í Kína. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var viðstaddur undirskriftina ásamt Kristínu A. Árnadóttur sendiherra í Kína, Dr.Zhan Qi, forstjóra Sinopec Star Petroleum og Benedikt Höskuldssyni, fulltrúi orkumála hjá utanríkisráðuneytinu.
Um Enex Kína
Enex Kína er íslenskt jarðhitafélag í eigu Geysis Green Energy (80,5%) og Reykjavik Energy Invest (19,5%) sem var stofnað til að taka þátt í uppbyggingu og þróun jarðhitanýtingar í Kína. Félagið hóf að vinna sem ráðgjafi fyrir kínverskar héraðsstjórnir árið 2002 og setti á stofn skrifstofu í Kína árið 2005 þegar samstarf hófst um hitaveitu í Xianyang borg í Shaanxi héraði og síðar um aðra hituveitu í Hebei héraði árið 2009. Veitustarfsemin er rekin í samstarfi við kínverska risafyrirtækið Sinopec í félagi sem heitir SGE en Sinopec Star Petroleum á 51% hlutafjár í félaginu og Enex Kína 49%.
